Lísa Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs, og Eyrún Ósk Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða og miðlunar á bókasafninu, spjölluðu við Gígju Hólmgeirsdóttur í Víðsvegar í vor. Þar ræddu þær meðal annars skynjunarsögustundir, fjölmenningarstarf, upplýsingaóreiðu og hlutverk bókasafna í samfélaginu.
Skynjunarsögustundir
„Starfsmenn bókasafnsins kynntust skynjunarsögustundum í Svíþjóð fyrir börn á aldrinum 0–18 mánaða, en hér höfum við þróað þær fyrir börn frá 0–5 ára,“ segir Eyrún.
Hún segir árangurinn hafa verið sérstaklega ánægjulegan hjá börnum sem áður áttu erfitt með að einbeita sér í hefðbundnum sögustundum.
„Krakkar sem áður áttu erfitt með að einbeita sér að sögustundunum okkar, til dæmis fjöltyngd börn og börn með taugaboðsraskanir, eru allt í einu farin að geta einbeitt sér alveg að sögustundunum. Við leikum okkur með hljóðfæri, endurtekningar, söng og liti. Við erum komnar í brúðuleik og erum alltaf að föndra eitthvað nýtt fyrir þessar sögustundir. Við erum mjög stoltar af þessu verkefni.“
Eyrún sér um skynjunarsögustundirnar ásamt Grétu og segir ólíkan bakgrunn þeirra nýtast vel í verkefninu.
„Ég er leikaramenntuð í grunninn og Gréta er með mikla hönnunarsýn og er algjör listamaður. Ég fer beint í að hugsa hvernig við getum gert hlutina á leikrænan hátt en Gréta fer í að föndra brúður og hanna allt rýmið. Þetta hefur því verið mjög gott samstarf.“
Fjölmenningardagskráin
„Við fórum í átak í fyrra eftir að við tókum eftir því að margir innflytjendur komu inn á safnið, en þá aðallega til að prenta og voru ekki að nýta aðra þjónustu okkar,“ segir Eyrún.
Í kjölfarið fór bókasafnið í samstarf við fjölmarga aðila til að finna leiðir til að gera starf og þjónustu safnsins aðgengilegri fyrir öll.
„Við höfum verið með ýmsa fasta viðburði og margar mjög spennandi menningarhátíðir þar sem við erum í samstarfi við innflytjendur. Við höfum fengið fólk til að halda menningarhátíð síns lands hér og þá fáum við líka að kynnast alls konar ólíkri menningu. Allir taka þátt og það er mjög skemmtilegt.“
Upplýsingaóreiðan
Upplýsingaóreiða og mikilvægi þess að geta lagt mat á upplýsingar hefur einnig verið meðal áhersluverkefna bókasafnsins.
„Við fórum af stað með átaksverkefni sem tengist upplýsingaóreiðunni og settum á laggirnar erindaröð þar sem boðið hefur verið upp á fræðslu um til dæmis netsvik, falsað efni á netinu, hvernig við getum sannreynt upplýsingar og hvernig algóritmar virka og hafa áhrif á skautun,“ segir Eyrún.
„Við erum búin að fá fullt af frábærum fyrirlesurum og ætlum að halda áfram með þetta verkefni. Hlutverk bókasafna er að halda utan um og miðla réttum og traustum upplýsingum, svo upplýsingaóreiðan er svo sannarlega eitthvað sem kemur okkur við.“
Bókasafnið sem þriðji staðurinn
„Eru bókasöfnin alltaf að breytast meira og meira í það að verða notalegur staður til að staldra við á?“ spyr Gígja.
„Já, akkúrat. Við erum eiginlega bara orðin félagsmiðstöð Kópavogsbæjar,“ segir Lísa. „Hér eru öll velkomin og fólk kemur hingað í raun til að gera hvað sem það vill gera, hvort sem það er að lesa, hitta aðra eða koma með fjölskylduna og börnin.“
Í daglegu starfi bókasafnsins er meðal annars talað um safnið sem „heimili að heiman“.
„Við viljum að fólk fari í vinnu og skóla og sé heima hjá sér, en að við séum þriðji áfangastaðurinn sem fólk kemur á. Við viljum því að hér sé huggulegt og kósí, hreint, fallegt og snyrtilegt og leggjum mikla áherslu á að fólki líði vel og vilji koma aftur,“ segir Lísa.
Hún segir bókasafnið geta gegnt margvíslegum hlutverkum og hingað séu öll velkomin.
„Bókasafnið er alls konar staður en aðalmálið er að þetta er staður þar sem fólk getur komið inn og allt er ókeypis. Þú þarft ekki að borga til að vera hérna og þú getur komið hvenær sem er og gert það sem þú vilt gera. Við viljum hafa það þannig svo að fólki líði vel hérna. Ég tel að það sé það sem bókasöfn eru í dag og munu verða áfram, vonandi,“ segir Lísa.
Hér má hlusta á viðtalið í heild sinni: Víðsvegar – Spilari RÚV















