Opnun sýningarinnar Tíðarandi í teikningum

18. janúar 2019

Sýningin Tíðarandi í teikningum sem er sýning á myndskreytingum í kennslubókum var opnuð á Bókasafni Kópavogs af Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra á laugardaginn var. 

Vel var mætt á opnunina en á meðal gesta var einmitt Baltasar Samper, sem er einn þeirra listamanna sem hefur myndskreytt námsbækur og teikningar hans á meðal gripa á sýningunni. Sýningin er samstarfsverkefni Bókasafns Kópavogs og Menntamálastofnunar en frummyndirnar eru í eigu stofnunarinnar. Sýningarhönnuður er Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir.

Tíðarandi í teikningum 1

Tíðarandi í teikningum 3

Tíðarandi í teikningum 2