Ljóðstafur Jóns úr Vör

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Árið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins.

Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.

Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.

Sýningarskrá

JÓN ÚR VÖR

Jón úr Vör fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins.

Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. 

Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000 og fyrsti ljóðstafurinn veittur á afmælisdegi skáldsins árið 2002.

Ljóðstafur Jóns úr Vör fagnaði 20 ára afmælis síns við hátíðlega viðhöfn í Salnum 21. febrúar 2022.

Aðalsafn

mán-mið
8-18
Sumardagurinn fyrsti
11-19
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-mið
13-18
Sumardagurinn fyrsti
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-mið
8-18
Sumardagurinn fyrsti
11-19
fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-mið
13-18
Sumardagurinn fyrsti
Lokað
fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað
Consent Management Platform by Real Cookie Banner