05. okt 12:15 – 13:00

Textíll, fatasóun og endurnýting með Ásdísi Jóelsdóttur

Aðalsafn – 1. hæð
Spennandi erindi Ásídísar Jóelsdóttur um neyslu, nýtingu og nýsköpun í textíl og tengingu þess við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Tískumarkaðurinn, sporin í framleiðslu textílafurða, fatasóun og ábyrg og siðræn neysla er á meðal þess sem Ásdís mun koma inn á. Samkvæmt Ásdísi er í því samhengi „nauðsynlegt að þekkja til flokkun hráefna sem og stærða-, þvotta- og meðferðarmerkinga og hvað þarf að hafa í huga við kaup á textílafurðum“ (2020), eitthvað sem vert er að hafa í huga ef umhverfissjónarmið eru tekin með í myndina. Einnig er skoðað hvernig hægt sé að framlengja líftíma fatnaðar og annarra textílafurða með því að gefa, skipta eða deila, eiga saman, gera við og bæta, breyta og skreyta eða skapa nýtt í þágu umhverfisverndar, meðal annars.

Ásdís Jóelsdóttir er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Umhverfisvernd er svo sannarlega eitthvað sem er í brennidepli þessa stundina og geta allir gert eitthvað með því að nýta og endurnýta.

Ef fólk hefur hug á að kaupa notað til að nýta og endurnýta fatnað og aðrar textílafurðir má benda á nytjamarkaði ýmissa hjálparsamtaka, til dæmis. 

Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum þar sem boðið er upp á fjölbreytt erindi,  listamannaleiðsagnir og tónleika. Ókeypis er á alla viðburði í viðburðaröðinni.  

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

30
júl
31
júl
06
ágú
07
ágú
12
ágú
17
ágú
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
13
ágú
14
ágú
20
ágú
20
ágú
13:00

Ævintýrasmiðja

Aðalsafn
02
sep
07
sep
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
07
okt
12
okt
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
04
nóv
09
nóv
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað