Verkfalli félagsfólks Eflingar í Kópavogi hefur verið aflýst. Aðalsafn Bókasafns Kópavogs opnar að nýju mánudaginn 11. maí kl. 12:00.
Safngestir eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér eftirfarandi tilmæli vegna COVID-19 og fylgja þeim eftir bestu getu:
- Allir gestir þurfa að sótthreinsa hendur áður en gengið er inn á safnið.
- Gestafjöldi verður takmarkaður og tveggja metra reglan verður í gildi. Gestir eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða fjarlægðartakmarkanir.
- Gögnum skal skilað á þar til gerða skilavagna inni á safninu eða í skilalúgu fyrir utan aðalsafn.
- Set- og lesaðstöður verða lokaðar og afþreying, kaffi og vatn verður ekki í boði.
- Eingöngu verður tekið við snertilausum greiðslum.
- Gestir í áhættuhópum eru hvattir til að koma á safnið fyrir hádegi og aðrir eftir hádegi.
- Gestir eru hvattir til að dvelja ekki lengi á safninu.
- Gögn sem átti að skila á meðan á lokun stóð hafa verið endurnýjuð til 14. maí. Sektir reiknast frá 14. maí sé gögnum ekki skilað fyrir þann dag.
- Gildistími lánþegaskírteina sem voru í gildi 23. mars hefur verið lengdur um 42 daga.
