Það er dásamlegt að lesa á sumrin, hvort sem það er úti í sólinni eða inni í tjaldi í rigningu!
Þess vegna ætlum við að bjóða upp á sumarlestur fyrir fullorðna í sumar. Einfalt mál, þú skráir þig hér á síðunni og ert þá með á sumarlestrarpóstlista. Þá verður Instagram-síða Bókasafns Kópavogs undirlögð af Leslyndi í sumar svo fylgist vel með til að fá góðar hugmyndir að næstu bók!
Umsagnir verða nýttar til að koma góðum bókum á framfæri við aðra lesendur.
Þrjár leiðir til að taka þátt í leslynda sumrinu:
1. Keppandinn
Til að taka virkan þátt í sumar og eiga möguleika á vinningi í hverri viku skráir þú þig fyrst í Leslyndið og sendir svo inn umsögn um hverja bók sem þú lest í sumar. Umsögn má vera stutt, miðlungs eða löng – alveg eins og þú vilt.
2. Klappliðið
Þátttakendur sem vilja skrá sig og vera með en ætla aðallega að sjá hvað annað fólk les í sumar og vilja eiga séns á vinningi ef góð bók dettur í fangið á þeim, sendið bara inn umsögn ef það gerist.
3. Áhorfandinn
Fyrir þau sem vilja ekki skrá sig en taka þátt úr öruggri fjarlægð gera það með því að fylgjast með á Instagram-síðu Bókasafns Kópavogs.
Drögum út vinningshafa vikulega!
Hamraborg 6a
200 Kópavogur
Skráðu þig á fréttabréf Bókasafns Kópavogs:
HAFÐU SAMBAND OG FYLGSTU MEÐ
OPNUNARTÍMI BÓKASAFNS KÓPAVOGS
mán til fös
kl. 8-18
laugardaga
kl. 11-17
mán til fös
kl. 13-18
laugardaga
kl. 11-15
Opið mánudaga – föstudaga
kl. 8-18
Opið laugardaga
kl. 11-17
Opið mánudaga – föstudaga
kl. 13-18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Skráðu þig hér á fréttabréf Bókasafns Kópavogs: